<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Hvað er það hræðilegasta sem þú óttast? Leðurblökur? Hákarlar? Börn!?!?!?!
Ég var einmitt að vinna í dag þegar maður með unga dóttur sína með sér kom til mín og var að ná í tölvuna sína. Ég náði í vélina hans og var að klára pappírs vinnuna þegar hann setur hana upp á borð hjá mér. Ekkert óeðlilegt. þegar ég var að gera nótuna fyrir manninn byrjar dóttir hans að stara á mig. Frekar óþægilegt. Allt í einu byrjar hún að hvísla eitthvað. Það var þá sem martröðin byrjaði. Ég fylltist skelfingu. Unga stelpan var að stara á mig og hvísla eitthvað sem ég heyrði ekki.
Ekki koma með börn til mín ef þau stara

|

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

blogg DRASL!

|
Comon!
Hvað meina þeir með gaurinn í höfninni. Gaurinn framdi sjálfsmorð. Hversu augljóst er það. Ef ég væri búínn að éta einhverja smokka með kókaíni og finna þegar einn smokkurinn springur, þá væri ég pottþéttur búinn að drepa mig og hvers vegna ekki láta muna eftir mér. Ég mundi bíða eftir því að einhver mundi fara á bíl niðrá bryggju, vefja mig í ruslapoka, stinga mig í magan 3 sinnum, henda nokkrum keðjum á mig festa þær við nokkra bobbinga, eða hvað sem þetta var, og hoppa út í sjó. Þetta er sjálfsmorð með stæl.

|
Comon!
Hvað meina þeir með gaurinn í höfninni. Gaurinn framdi sjálfsmorð. Hversu augljóst er það. Ef ég væri búínn að éta einhverja smokka með kókaíni þá væri ég pottþéttur búinn að drepa mig og hvers vegna ekki láta muna eftir mér. Ég mundi bíða eftir því að einhver mundi fara á bíl niðrá bryggju, vefja mig í ruslapoka, stinga mig í magan 3 sinnum, henda nokkrum keðjum á mig festa þær við nokkra bobbinga, eða hvað sem þetta var, og hoppa út í sjó. Þetta er allavega sjálfsmorð með stæl.

|

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Mig dreymdi drauma.

Fyrri draumurinn byrjaði á því að ég var einn. Ég var að labba hjá einhverju húsi og sá lítinn glugga sem benti til þess að það var kjallari í húsinu. Ég ákvað að líta inn og sá drungalegann gang. Þetta vakti forvitni mína og ákvað að fara inn um gluggann. Ég labbaði í smá tíma þangað til að ég sá hurð. Ég opna hurðina og sé fullt af líkum. Ég labba yfir líkin og reyni að finna einhvern lifandi. Ég sé svo hurð á hægri hönd. Ég opna hurðina og sé fullt af lirfum á gólfinu og sitjandi mann sem brennur. Ég verð skelkaður og loka hurðinni og sný mér við, þar er önnur hurð sem ég opna. Þar situr stelpa með galopin augu og er með sona lækna drasl sem fólk er með þegar það er verið að mæla hjarsláttinn og allt þetta. Ég byrja á því að rífa þetta dót af henni og tek hana upp og hendi henni upp á öxl á mér. Allt í einu stendur eld kallinn upp og opnar hurðina... Það var þá sem ég vaknaði

Seinni draumurinn kemur seinna. Nenni ekki að skrifa

|

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Fór í bíó um daginn. Sá The Big Fish, mögnuð mynd alveg.
Táraðist smá.
Gef henni 8½ af 10 mögulegum *


* = Stjörnum

|
Klessti á vegg í dag.
Meiddi mig ekki neitt

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?