<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Hvað er það hræðilegasta sem þú óttast? Leðurblökur? Hákarlar? Börn!?!?!?!
Ég var einmitt að vinna í dag þegar maður með unga dóttur sína með sér kom til mín og var að ná í tölvuna sína. Ég náði í vélina hans og var að klára pappírs vinnuna þegar hann setur hana upp á borð hjá mér. Ekkert óeðlilegt. þegar ég var að gera nótuna fyrir manninn byrjar dóttir hans að stara á mig. Frekar óþægilegt. Allt í einu byrjar hún að hvísla eitthvað. Það var þá sem martröðin byrjaði. Ég fylltist skelfingu. Unga stelpan var að stara á mig og hvísla eitthvað sem ég heyrði ekki.
Ekki koma með börn til mín ef þau stara

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?