<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Jæja þá er ég ný kominn frá útlöndum. Og það er shithole hjá mér og það er ekkert annað en Danmörk sem fer þangað.

Já ég einmitt fór til Danmerkur á Roskildefestival sem var frábær frá byrjun og til enda.

Nóg af henni þá er komið að kaupmannahöfn. Ég fór einmitt til Kaupmannahafnar til að sjá eitthvað en það var bara ekkert til að sjá.



_-_-_-_-_-_-_-_
THE SHITHOLE
-_-_-_-_-_-_-_-

Danmörk.

Það er eitt af þeim löndum sem hafa ekki fjöll, þ.a.l er ekki gott vatn í danmörku og þar sem gosdrykkir eru búnir til úr vatni þá eru gosdrykkirnir í danmörku ógeðslegir.
Síðan er það merkilega sem hægt er að sjá þarna. Ok það sem við Íslendingarnir sjáum mjög sjaldan er fólk sem stoppar á rauðum kalli. Það var mikið um það þarna þó svo að það var nótt og enginn bíll sjáanlegur í margra kílómetra fjarlægð.
Já það er eitt sem ég fékk að heyra á Roskildefestival. Ég var að bulla í einhverjum Svía á dönsku og hann bullaði eitthvað á sænsku til baka og ég skildi hann ekki. Ég sagði dömunni á ensku að ég talaði ekki dönsku eða sænsku. Hún fór þá að segja mér að við ættum að skilja hvort annað útaf því að við værum frá norðurlöndunum. Ég talaði þá við hana á íslensku og hún skildi ekki skít. Þá ákvað hún að það væri í lagi fyrir Íslendinga að tala ensku við þá. Við eigum ekkert að þurfa að tala eitthvað mál sem við viljum ekki tala. mig langar ekkert að skilja þá og vil ekkert að þeir skilji mig. Þannig að ég held mér við enskuna, sem er kominn frá einu af frábærasta máli í heimi(latínu). Megi norðurlöndin fara í rotinn endaþarm.

Ég get talað um margt fleira um danmörku en ég nenni ekki að skrifa um það.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?