<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Sælt veri fólkið

Ég er kominn heim, brúnn og sætur.

Það er svo margt sem ég þarf að segja en nenni ekki að segja það núna.
Það koma video myndir af félögum mínum á heimasíðu bráðlega sem ég mun setja sem hlekk hérna bráðlega.

Búinn í bili, farinn að bjarga dömu í djúpu gili

Ofurmaðurinn

|

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Mallorca!!!


Já ég er farinn til Mallorca til að leita uppi hryðjuverkamenn. Við sjáums eftir viku.


Ef Óp þitt heyrist í fjarska.. mun ég hitta þig sekúntum síðar.
Ofurmaðurinn

|

þriðjudagur, júlí 19, 2005

Hugsanir, hugsanir, hugsanir..

Já.

Í þessum skrifuðu orðum er ég einmitt að hugsa um það að leita mér að dömu til lengri tíma.
Best að skrifa upp kosti og galla.

Gallar
1. Hún kvartar.
2. Það kemur vond lykt af konum 7 daga, +/-3 dagar, af mánuðinum
3. Ég get ekki fengið mér einnar nætur gaman án þess að hún verði með leiðindi.
4. Hún verður fúl ef ég stunda sjálfsfróun án hennar.
5. Hún vill að við kúrum þegar ég nenni því ekki.
6. Ég verð að hitta tengdamömmu og pabba.
7. Ég þarf að fara í matarboð.
8. Ég þarf að laga hluti.
9. Hún verður fúl ef ég fæ mér bjór á meðan hún er að ryksuga.
10. Ég nenni ekki að halda í hendur.

Kostir
1. Þú hefur einhvern sem þú getur sofið hjá hvenær sem þú villt
2. Þegar þér er kallt þá ertu með gangandi hitapoka, sem er yfirleitt í 37°, sem þú getur hlýjað þér á.
3. Ef þig langar að berja einhvern án þess að hann kjafti frá þá geturu slegið í hitapokann.

Tek það fram að ég lem sjaldan fólk. Ég yfirleitt tala það til eða þá að ég nota kraftana mína til að stoppa það.

Þetta eru kostir og gallar sambands.

En..
Það er alltaf eitthvað sem kitlar taugina, hvort það sé þessi frumstæða hugsun mannsins eða þá að þetta sé eitthvað sem maðurinn saknar eftir að hafa prufað svona lagað.

Við munum sofa á þessu í kvöld. Og ef þú vill þá get ég sofið á þér í kvöld...


Ofurmaðurinn

|

þriðjudagur, júlí 12, 2005

Hugsun Dagsins

Já Ofurmaðurinn var að hugsa í dag, á meðan hann var að bjarga fólki, um stelpu sem hann sá á Kofanum. Hún var geislandi fögur og í þessum ofur-kynæsandi kjól sem var kínverskur/japanskur, frá þessum asíu löndum.
Ofurmaðurinn man það að hann sá hana á föstudegi og gat ekki annað en dáðst að henni sama kvöld og daginn eftir. Hann fór aftur á kofann helgina eftir á sá hana þar aftur. Og hvað haldiði? Þessir kraftar frá henni fengu Ofurmanninn til þess að fá sting í hjartað.
Vonast til að sjá hana aftur.


Fljúga hvítu fiðrildin.. en samt ekki jafn hratt og ég

Ofurmaðurinn

|
Já sagði maðurinn og seldi sig í þrældóm.

Og hvað meina ég með þessum orðum?
auðvitað giftingar.
Ég hef ákveðið að setja giftingar í nýja hornið mitt sem kemur í lok greinarinnar.

Ofurmaðurinn bjargaði ekki mörgum dömum um helgina. Reyndar bara ekki neinni.
Hitti nokkar dömur sem ég kannast við en ekkert merkilegt.

"Er þetta endaþarmurinn á mér sem lyktar sona illa eða er það eitthvað annað?" Hornið

Já í þetta horn verður fyrir valinu giftingar.
Og fólk spyr mig "afhverju ertu sona á móti giftingum?"

Það er vegna þess að flestir sem eru að hugsa um að giftast hinum aðilanum vilja trúlofast honum, og það er ekkert að því, en þegar þú ert búinn að vera með einstaklingnum í kannski innan við ár eða rúmt ár og trúlofast manneskjunni þá er eitthvað verulega mikið að. Það er enginn sem trúlofar sig sona snemma, sem minnir mig á það hvernig Bachelor eða Bachelorette er. Þar er parið saman í einhvern 1 og hálfan mánuð og á síðan að trúlofast hinni manneskjunni, sem er btw mesta vitleysa sem til er. En það er málið að fólk vill lifa í þessum drauma heimi, þar sem allt er þakið rósum og drukkið er úr gull bikurum. Í guðanabænum vakniði sem hugsið sona. Það er enginn sem giftir sig eftir rúmt ár eða eftir 5 ár. Þú ert ennþá að kynnast maka þínum eftir 5 ár. Hann er kannski búinn að leyna þér eitthvað eftir öll þessi ár sem þú hefðir átt að vita. Og þá er ég ekki að tala um eitthvað sem hún þarf ekki að vita. Eins og þegar þú fékkst klamedíuna í menntaskóla.
Og giftingar bæta ekkert frekar sambandið. Ef það sé eitthvað þá verður það flóknara. Eins og t.d. það að ungt fólk er byrjað að gera kaupsamninga, því það treystir ekki hinum aðilanum til að skila hlutunum sem það kom með í giftinguna. Og í mörgum tilvikum þá eru það kvennmenn sem lenda þar í vandræðum. Og hvernig getur það verið. Jú, jú, karlpeningurinn kaupir sér íbúð og nælir sér yfirleitt í yngri konur (verð að viðurkenna fyrir kvenþjóðinni að Ofurmaðurinn er meira fyrir þær eldri) sem búa hjá foreldrum eða annarstaðar þar sem það á ekki rosalega mikið af húsgögnum. Þið eruð ánægðar með íbúðina og allt það, og þið giftið ykkur og eignist barn og hann heldur framhjá og þið hættið saman og hann borgar 11000 krónur í meðlag þangað til barnið nær 18 ára aldri. Sona eru giftingar oft á tíðum.
Vil líka taka það fram að ég er ekki að segja að þetta sé sona, en oft gerist þetta því fólk er ekki tilbúið í þetta. Og oftast þá karlpeningurinn.


Ég verð að viðurkenna það að ég er tilbúinn í hjónaband, en mig langar ekkert til þess.



Hjónabandsælan

Ofurmaðurinn

|

sunnudagur, júlí 10, 2005

Laugardagurinn góði

Nú er komin laugardagur og ég sagði í gær að ég æltaði að gera 2 greinar. Önnur er núna og hin þegar ég kem heim.

Þetta er búið að vera ágætt.
Ofurmaðurinn er búinn að fá sér smá öl, en eins og allir vita þá verður Ofurmaðurinn ekki fullur.
Markmið kvöldsins er að skemmta sér eins og þið skemmtið ykkur, mannfólk.

Nú er ferðinni heitið á Oliver til að ath. hvernig kvennmenn haga sér niðrí bæ.

Dr.Doom er hér við hlið mér og bendir mér á að Oliver er einn heitasti staður landsins, þó hann hafi ekki farið þangað.


Have no fear cause Ofurmaðurinn is here

Ofurmaðurinn

|

föstudagur, júlí 08, 2005

Þá er komin helgi.

Föstudagurinn felur í sér margt gott. Lok vinnuvikunar hjá mörgum, fyllerí með félugunum/vinkonunum, sumarbústaðarferð með fjölskyldunni omfl. En Ofurmaðurinn mun vinna þessa helgi, alveg eins og síðustu helgi. En ekki örvænta því hann mun líka skemmta sér og ykkur eins mögulega og hann getur. Ofurmaðurinn ætlar sér að eyða kvöldinu á litlum skemmtistöðum borgarinnar eins og t.d. Kofanum, Prikinu og Ara.

Ofurmaðurinn kemur með færslu á morgun áður en hann fer niðrí bæ og eftir að hann kemur úr bænum og segir ykkur frá ævintýrum kvöldsins.

Ekki óttast því Ofurmaðurinn er hér

Ofurmaðurinn

|

laugardagur, júlí 02, 2005

Laugardagurinn......

Það eru allir farnir á færeyskudagana en ég er ennþá hérna í bænum. Það þýðir bara eitt, að það verður miklu skemmtilegra í bænum en þarna út í rassgati.

það var ekki mikið gert í gær(föstudag). Hangið var heima og fengið sér smá öl.

Í kvöld er ég að fara til Djúpulaugs keppanda hans Batmanuel. Vioð munum skemmta okkur því heiti potturinn hans mun gleðja alla. Síðan en ekki síst þá mun Ofurmaðurinn syngja fyrir dömurnar Touch me með The Doors og mun hann bræða hjörtu þeirra eins og hann bræðir súkkulaði á brjóstunum þeirra.

Passaðu þig!
Ofurmaðurinn

|

föstudagur, júlí 01, 2005

1. Helgin í júlí

Þá er komið að helginni sem margir eru að bíða eftir. Margir halda ferð sinni til Ólafsvíkur, aðrir einhvert annað.

Ferð minni er haldið einhvert annað og fyrsti áfangastaðurinn er partý hjá félaga mínum Batmanuel. Það mun verða mikið gaman og mikið grín hjá honum. Eftir þann leiðangur þá verður farið í annað partý hjá Flash sem býr niðrí bæ. Þar verður mikið drukkið.

Ég vona að dömurnar fari ekki langt því ekki er alltaf gaman í "pulla" partýum.


Ég er ekki með sona Voting system en ég ætla að reyna á það.
Allar stelpur sem fara inná þessa síðu, segið eitthvað í comment á þessari grein(ég ætla að metast við vin minn Dr. Doom)

Með stórri skeið skal ég skafa burt ást mína á þér.
Kv. Ofurmaðurinn

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?