<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Afhverju?

Afhverju er lífið sona ömurlegt.
Ætli það sé skárra í simbabwe.

nei örugglega ekki en sona hljómar ágætis íslenskt lag.

En nóg um það.

Ég hringdi í dömuna sem ég hitti á Stykkishólmi. Ekkert merkilegt við það.

Ég er að fara að halda uppá 30 ára afmælið mitt 1. helgina í sept.


vúhú

Ofurmaðurinn

|

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Betra getur það ekki verið.

Nei það er nú ekki satt því betra getur allt orðið.

Það minnir mig á eitt...


Er þetta fugl? Er þetta flugvél? Nei þetta er Ofurmaðurinn

Ofurmaðurinn

|

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Danskir dagar í Hólminum.

Já ég fór þangað og endaði það allt vel.
Ég náði mér í dömu á föstudagskvöldinu. Hitti hana síðan aftur á lauardagskvödinu.

Það var nú ekkert merkilegra við þessa helgi en hún var góð


Úps
Ofurmaðurinn

|

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Nei, Já og aftur nei.

Þetta er frekar ruglingslegt alveg eins og ofurmaðurinn.

Ég var á Glaumbar á laugardagskvöldinu. Fékk mér í glas og var að tala við einhvern ameríkana þegar mér á hægri hönd sest myndarleg stelpa. Ofurmaðurinn vissi hver hún væri því hún kom á vinnustaðinn minn og náði í hluti fyrir fyrirtækið sem hún vann fyrir. Ofurmaðurinn heilsaði uppá hana og fyrr en varði var hún komin í fangið á Ofurmanninum. Jæja, við spjölluðum saman heil lengi og endaði það með góðum kossi og númeri.

Og talandi um númer, þá var ég að spjalla við Drottninguna og ég sagði við hana að þegar ég fæ númer hjá einhverri þá endaði það yfirleitt ekki vel. Annað hvort nennti ég ekki að spjalla við dömuna eða þá að ég komst að því að hún væri ekki sem ég bjóst við.

Kannski Ofurmaðurinn hafi samband við hana og sjái hvort hún sé þess virði.. En eru konur þess virði??



Ég á mér draum um straum
Ofurmaðurinn

|

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Mallorca.
Ferðin var frábær. Okkur tókst mjög vel að taka yfir mannskapinn.
Tæknin sem við notuðum var á þessari leið..
Dulbúðum okkur sem þjóðverjar.
Náðum tökum yfir nokkra skemmtistaði.
Fengum í lið við okkur ofurhetjur frá Lichtenstein(eða hvernig sem það er skrifað).
Tókum yfir nokkra bæi fyrir utan Palma.

Þetta er gróf lýsing hvernig þetta fór fram.

Dömurnar á staðnum reyndu að ná tangarhaldi á okkur en Ofurmaðurinn lét ekki blekkjast.
Ég vona að fleiri feti í fótspor mín og taki yfir þessa frábæru staði sem eru þarna úti.


Það getur enginn sigrast á dauðanum.. Nema ég
Ofurmaðurinn

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?