<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Nei, Já og aftur nei.

Þetta er frekar ruglingslegt alveg eins og ofurmaðurinn.

Ég var á Glaumbar á laugardagskvöldinu. Fékk mér í glas og var að tala við einhvern ameríkana þegar mér á hægri hönd sest myndarleg stelpa. Ofurmaðurinn vissi hver hún væri því hún kom á vinnustaðinn minn og náði í hluti fyrir fyrirtækið sem hún vann fyrir. Ofurmaðurinn heilsaði uppá hana og fyrr en varði var hún komin í fangið á Ofurmanninum. Jæja, við spjölluðum saman heil lengi og endaði það með góðum kossi og númeri.

Og talandi um númer, þá var ég að spjalla við Drottninguna og ég sagði við hana að þegar ég fæ númer hjá einhverri þá endaði það yfirleitt ekki vel. Annað hvort nennti ég ekki að spjalla við dömuna eða þá að ég komst að því að hún væri ekki sem ég bjóst við.

Kannski Ofurmaðurinn hafi samband við hana og sjái hvort hún sé þess virði.. En eru konur þess virði??



Ég á mér draum um straum
Ofurmaðurinn

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?