<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, júlí 14, 2006

Bíómyndir

Þeir eru núna að sýna mynd um mig, sem er nú meira ruglið. Ekki eins og einhver steinn geti drepið mig. Nei það er nú ekki þannig í raunveruleikanum.

Ég ætla nú ekki að tala um bíómyndina, ég ætla að tala um kvennamál og fleira.
Eins og allir vita þá á ég mér Lois Lane sem kallar sig Drottningu djammsins,en það er ein sem er byrjuð að kitla viðkvæmar taugar.
Já sú heppna heitir ... get nú ekki sagt ykkur það því þá gæti einhver notað það gegn mér.

Þetta byrjaði allt í vinnunni þegar ég var að fljúga eins og vanalega þegar ég sé þessa píu sem var í vanda stödd. Ekki var ég lengi að renna við og sjá hvað vandamálið væri (því miður get ég ekki sagt frá því vegna einkaleyfis á öllum mínum bjargvættar sögum). Ég fékk númerið hjá henni að lokinni björgun og fór sían heim. Þar ákvað ég að slá á þráðinn. Við ræddum saman í nokkra stund um daginn og veginn, enduðum það síðan á léttum nótum.

Þá er komið að hugleiðingum Ofurmannsins.

Eru stelpur einungis leiktæki sem geta svarað á móti eða eru þær vitsmunaverur sem eiga skilið fallegan ungan pilt sem getur gefið þeim alla þá hamingju sem þær hafa alltaf viljað?

Ég verð nú að segja að þessi dama er nú meira heldur en eitthvað leiktæki.

Það er spurning hvað Ofurmaðurinn gerir.





Aldrei mun svefn Ofurmanninn buga.

Ofurmaðurinn ehf.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?